Mitt pláss...
Þeirra pláss
20.08.2005 12:08:06 / auspaus

Vigtin

Vigtin er ekki enn farin að vinna með mér......held samt að cm séu að skríða burt.....mældi mig í gær og jú eitthvað er farið en það fer hægt. Jah það er allavega betra að það fari hægt en ekki. Reyni að vera jákvæð! Tók svakalega á í ræktinni í gær. Var að taka neðri hluta og er farin að bæta við þyngdir á lóðunum. Mér líður allri betur. Bæði er baki  betra, maginn er betri og höfuðverkirnir eru á undanhaldi. Mér finnst samt eins og kílóin megi fara hraðar........

Ég vildi svo deila með ykkur að ég er loksins komin með ADSL tengingu mér og syni mínum til mikilla gleði. Hann getur því endalaust verið á leikjanet.is...:D

já stundum er lífið bara ágætt. Get ekki beðið eftir að byrja í skólanum....famous last words....8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2005 18:30:55 / auspaus

Sumarfrí

Hið ljúfa sumarfrí er bráðum á enda og skólinn að fara að byrja. Ég verð nú bara að segja að ég hlakka bara mikið til að fara að byrja aftur í skólanum. Þetta verður bara fínn vetur! Best að fara að borða hjá Hótel Mömmu.

p.s. veit einhver um hundabúr (stórt) ti sölu. Bráðvantar!!!!! hringið 892-4204


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2005 16:20:35 / auspaus

Hjónabandinu er slitið!!!

Ég fór með Hlyn á róló eftir hádegi einn góðan veðurdag, sem er ekki svo sem frásögu færandi nema að með í för var ,,kærastan’’ hans Hlyns hún Erika Mjöll. Hann var voða góður við hana og leyfði henni að sitja á pullunni hans og allt. Svo kom ég að sækja þau um hálf 5 leytið og þá var nú komið annað hljóð í skrokkinn. Það hafði orðið smá drama.....eða ástarþríhyrnings-drama.:S :$Hlynur hafði sem sagt fengið sér aðra kærustu sem var þarna á róló. Eriku var bara pent sagt upp á staðnum og skellt í skuggann. Hann var frekar leiðinlegur við hana og hún var mjög sár útí hann.
Ég reyndi að fá hann til að biðjast afsökunar en hann bara fór inn í bíl og skellti sér á sína pullu og hélt fyrir eyrun! Á leiðinni heim hélt ég áfram að segja honum að svona kæmi maður ekki fram við vini sína og blabla....,,og biddu hana fyrirgefningar’’!!

Hlynur: Já....mamma ég ætla bara að tala við hana!

Ég: gerðu það þá.....

H: Sko....Erika, ég er búin að finna mér aðra kærustu.......

E: ok....þá mátt þú ekki koma heim til mín...(og ect.)

H: Það er allt í lagi, því er búinn að SLÍTA hjónabandinu...(þolinmóðri röddu)

E: ha...? Slíta hverju...?

H: Nú hjónabandinu!

Ég var alveg að springa úr hlátri þarna fram í bílnum:lol::lol:.....Þetta var alveg kostulegt. Þegar heim var komið tók ég þau bæði og spjallaði við þau og Hlynur baðst afsökunnar. Svo labbaði Erika heim til sín (hún á heima bara nokkur skref frá okkur) og Hlynur fór á eftir en hún algjörlega hunsaði hann.

Hann kallaði og lét sig svo detta á hnén....en Erika hélt bara áfram heim.

Ég fór inn og Hlynur kom stuttu seinna. Þá sagði ég honum að nú yrði hann að vera extra almennilegur við Eriku ef hann ætlaði ekki að missa hana sem vinkonu....já...

heyrist í mínum manni. Og svo fór hann út.

Stuttu seinna sé ég hann fara með blóm fyrir aftan bak til að gefa henni. Þetta voru einhver appelsínugul blóm sem hann hefur örugglega slitið upp í einhverjum garði!!! Hann gaf henni svo blómin og nú ert allt í himnalagi nema þau eru ekki lengur kærustpar! Lífið er svo flókið þegar maður er 6 ára.:!:

 

Annars er allt bara hið besta að frétta. Skólinn að fara að byrja hjá okkur mæðgininum í næstu viku. Ég er bara nokkuð spennt. Ég fékk að velja mér námskeið af 3.og 5.misseri svo ég hafi eitthvað að gera þegar hinir eru í námskeiðunum sem ég er búin með. Um áramótin eru þau búin að ná mér svo ég fer á sama ról. Svo styttist í ferðalagið mitt.....Ég man ekki hvort ég var búin að ,,blogga’’ það en ég er að fara í ,,gönguferð’’ á Hellisheiði með brautinni minni og það tekur 5-8 tíma hvora leið. Við gistum í tjöldum eða skála.....og þetta verður mikið púl.8|

Ég ákvað því eftir að ég fékk tilkynningu um þessa ferð að flýta svokallaða átaki mínu sem ég ætlaði að fara í þegar skólinn byrjaði. Ég fór því að fara eftir ,,body for life’’ ferlinu...eða líkaminn fyrir lífið, og hef verið að lyfta annan hvern dag og stunda þolæfingar á Orbitrekinu mínu síðan 25.júlí!!!! Ég hef ekki sagt neitt um þetta fyrr vegna þess að ég hef iðulega byrjað á einhverju og hætt því og ég vildi ekki vera að blaðra um þetta og svo springa á öllu saman. En ég var að byrja mína 4 viku í dag og þetta gegnur alveg stórvel. Ég borða mjög hollt og leyfi mér bara nammi á laugardögum. Ég finn mun á fötunum mínum en vigtin er ekki alveg að vinna með mér eins og er. Það kemur. Ég er auðvitað að bæta líka við vöðvamassa......eða svo er sagt :þ 

Eina sem mér finnst vera erfitt er að borða nóg. Ég er alls ekki nógu dugleg að borða.......Ég er búin að vera á fullu að þrífa og hef stundum gleymt að borða á milli. Sumir dagar eru frekar ógeðslegir. Fer að þrífa klukkan 10, lyfta svo hálf 11 og aftur að þrífa klukkan 13. Og ég er beisiklí blaut af svita allan daginn.

En þessa viku er ég í hálfgerðu sumarfríi. Flestar kellurnar sem ég hef verið að leysa af eru komnar úr sumarfríi og ég hef ekki eins mikið að gera. Ætla bara að njóta þess svona síðustu dagana fyrir skólann. ;)

 

By the way.......mæli ekki með því að fólk versli í Hyrnunni. Þjónustan er alveg skelfileg.....enda við hverju öðru að búast þegar meðalaldurinn er 12 ára hjá þeim sem vinna þarna:klikk:



 


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.08.2005 09:50:49 / auspaus

27 ára í dag!!!!

Ég á afmæli í dag ég á afmæli í dag lallalalallalala

skemmtilegt!

out


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.08.2005 00:05:29 / auspaus

Gael García Bernal

Jamm ég er ástfangin! Hann heitir Gael García Bernal og kemur frá Mexico....og ég get bara látið mig dreyma því hann er leikari og ég skæli súrum tárum yfir því.:lol:

Mæli með Dot the i myndinni sem hann leikur í.....mjög góð. Hann er svo svakalega sætur að mér líður eins og ég sé orðin 13 ára skólastelpa með fiðrildi í maganum.....:)

Annars er það að frétta að nokkrir hafa tilkynnt komu sína í afmælið......Verzlunarmannahelgin var algjör snilld.....skrifa um hana seinna.

over and out

aus

p.s. SVENNI gerðu mig nú glaða að mæta í afmælið mitt og taktu Alex með þér....já og bara taktu með þá sem þú vilt. Vil endilega fá ykkur, ég náði ekki einu sinni að kveðja ykkur á sunnudaginn. Gisting í boði!;)


» 2 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  60  Alls: 145347
Þínir flokkar
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti