HAHAHAHAHAHAHA
Hvað í anskotanum er að þessu Borgarstjórnarliði í Reykjavík?
Er fólk bara í sandkassaleik og fær himinhá laun fyrir?????
Er að horfa á Björn Inga blaðra um að þetta hafi komið honum alveg á óvart og hann hafi ekki vitað um neitt ósætti og BLABLABLABLA......þau eru nánast grenjandi og tuða yfir því að fólk hafi stungið mann og annan í bakið?
Fyrirgefðu Björn Ingi Yfirgrenjari Íslands...hvað gerðir þú á sínum tíma. Svo vogaru þér að koma í sjónvarpið og grenja yfir að einhver fari á bak við þig!!! Í guðanna bænum hver nennir að hlusta á þig eiginlega. Held að allt þetta pakk Framsóknarlið, Samfylking eða Sjálfstæðislið að fara heim til sín og grenja þar í friði. Reka þetta allt saman og ráða upp á nýtt.
Ég sé þetta alveg fyrir mér.
Villi: Óli minn eigum við að vera memm?
Óli: Ég má ekki leika við þig
Villi: en ef ég geri þig að Borgarstjóra?
Óli: Ok..frábært
Villi: En bara hálfan tímann....svo tek ég við...þá mátt þú vera annars staðar yfir Ok?
Óli: Já ok...ég er líka svo eitthvað slappur.....en ég fæ samt að ráða helmingnum?
Villi: Auðvitað Óli minn.......
Villi er bara að hefna sín, býður Óla að vera með svo hann nái meirihlutanum og tekur hann svo af Óla seinna meir.
DJÖFULSINS HELVÍTIS BULL OG KJAFTÆÐI!!!!
HVERNIG VÆRI AÐ ÞIÐ FÆRUÐ AÐ VINNA YKKAR VINNU OG HÆTTIÐ AÐ HAGA YKKUR EINS OG KRAKKAR Í LEIKSKÓLA SEM ER Í SANDKASSALEIK!!!
pís át
aus